21.8.08

Frí...

Mikið er nú gott að vera í svona fríi.

Hef notað síðustu daga í að heimsækja vini og ættingja.

Á morgun er svo stefnan sett á sumarbústað í Grímsnesinu.

Lífið er gott.

12.8.08

Sumarið 2008

Líklegast besta sumar í heimi.

11.8.08

Fiskidagurinn Mikli

Get sko mælt með honum. Alveg snilldin ein.

Mikið hlegið - mikið borðaða og mikið af góðu fólki.

Takk fyrir mig.

8.8.08

Tilraun 1000...

Nú langar mig að prófa að byrja að blogga aftur - ekki spyrja mig hversvegna.
Lífið er mjög gott þessa dagana - fóan bara komin á fast og allt að gerast.

Fiskidagurinn mikli á morgun og er stefnan sett þangað. Mikil gleði - mikið gaman.

28.11.07

Kveðjustund...

Ég þoli ekki kveðjustundir. Þær hafa alltaf farið svo illa í mig.

Nú eru aðeins 2 dagar þar til ég fer suður og er því á fullu þessa dagana að kveðja.

Suma er verra að kveðja en aðra - það er bara þannig.

26.11.07

Mánudagurinn...

Ég vaknaði í morgun og það var myrkur.
Ég datt svo ililega á rassinn í miðjan drullupoll á leiðinni í vinnuna.
Ég er að drepast í hnénu.
Ég var á fullu í vinnunni í allan dag.
Ég fór heim úr vinnunni og það var myrkur.

En samt er ég glöð í hjartanu...

24.11.07

Yndislegur dagur....

Átti svo yndislegan dag í dag og hann er varla hálfnaður...

Þetta byrjaði allt í gærkveldi þegar 20 lækna-gellur hittust og bjuggu til konfektl. Algjör snilld.

Mætti svo í vinnuna kl 09 og það var alveg frábært. Komst í eina aðgerð og alles. Algjör snilld.

Leiðin lá að því loknu í jólahúsið með henni Sólveigu minni. Algjör snilld.

Eftir jólahúsið tók svo við kaffihúsaferð á Bláu könnuna. Fékk mér ekki eitt heldur tvö stro-kakó. Algjör snilld.

Er nú að taka mig til. Planið er að fara út að borða. Mohito-partý hjá Sólveigu og svo tjútt niður í bæ. Algjör snilld.

Lífið er algjör snilld.

fóa lidda

bla bla bla...

Blog Archive

Um mig